28. október 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið

Ísland hlýtur brautargengi til setu í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar

{image.Description}
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri og nýkjörinn fulltrúi Íslands í framkvæmdastjórn WHO

Ísland hefur hlotið brautargengi til setu í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) á 76. fundi Evrópunefndar stofnunarinnar sem fram fer í Kaupmannahöfn dagana 27.–29. október 2026. Seta Íslands verður formlega staðfest af aðildarríkjum WHO á Alþjóðaheilbrigðisþinginu í maí 2027.

Ísland, Þýskaland og Lúxemborg höfðu öll gefið kost á sér til setu í framkvæmdastjórn WHO fyrir hönd sama ríkjahóps Evrópusvæðisins. Fastanefnd Evrópunefndar WHO (Standing Committee of the Regional Committee) lagði til að Ísland hlyti brautargengi til setu í framkvæmdastjórninni. Þýskaland og Lúxemborg drógu framboð sín til baka og því kom ekki til kosninga milli ríkjanna.

Aukið hlutverk Íslands í alþjóðlegu heilbrigðissamstarfi

Framkvæmdastjórn WHO (Executive Board) er skipuð 34 fulltrúum sem tilnefndir eru af aðildarríkjum stofnunarinnar til þriggja ára í senn. Með kjörinu verður Ísland með einn af átta fulltrúum Evrópuríkja í framkvæmdastjórninni. Síðast átti Ísland fulltrúa í framkvæmdastjórninni árin 2003-2006 þegar Davíð Á. Gunnarsson þáverandi ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu sat þar fyrir Íslands hönd. Framkvæmdastjórnin gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun og stjórnun WHO. Hún undirbýr meðal annars mál fyrir Alþjóðaheilbrigðisþingið, fylgir eftir ákvörðunum þess og hefur umsjón með framkvæmd stefnu og verkefna stofnunarinnar.

„Það er ánægjulegt að Ísland hafi hlotið stuðning til setu í framkvæmdastjórn WHO. Alþjóðlegt samstarf á sviði heilbrigðismála skiptir sífellt meira máli og með setu í framkvæmdastjórninni fáum við tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnumótun stofnunarinnar. Margir hafa lagt hönd á plóg við að undirbúa og vinna að framboði Íslands, meðal annars fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins, og vil ég þakka öllum sem komu að þeirri vinnu. Þetta er góður árangur fyrir Ísland og mikilvægt tækifæri til að leggja okkar af mörkum í alþjóðlegu heilbrigðissamstarfi,“ segir Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra.

Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu mun fara með umboð Íslands í framkvæmdastjórninni. Seta Íslands í stjórninni skapar vettvang til að miðla íslenskri reynslu og þekkingu og taka þátt í samstarfi um sameiginlegar áskoranir, svo sem eflingu heilbrigðiskerfa, forvarnir, heilbrigðisöryggi og jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu.

Formleg staðfesting í maí 2027

Niðurstaða fundar Evrópunefndar WHO í Kaupmannahöfn felur í sér að Ísland hlýtur brautargengi til setu í framkvæmdastjórninni. Seta Íslands verður formlega staðfest af aðildarríkjum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á Alþjóðaheilbrigðisþinginu (World Health Assembly) í maí 2027.

Þriggja ára setutímabil Íslands í framkvæmdastjórninni hefst að loknu Alþjóðaheilbrigðisþinginu í maí 2027 og stendur til maí 2030.

Nánari upplýsingar um starf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar má finna á vef WHO.