Grunnfærni og framtíð menntunar í brennidepli á ráðherrafundi í Dyflinni
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tók þátt í óformlegum fundi menntamálaráðherra Evrópusambandsins í Dyflinni 15.–16. október. Á fundinum var rætt um leiðir til að efla grunnfærni nemenda í ljósi niðurstaðna PISA 2025 og hvernig menntakerfi geti betur mætt breyttum færniþörfum samfélagsins. Áhersla var lögð á menntun og færniþróun alla ævi, inngildingu og jöfn tækifæri til náms.
Írland, sem gegnir formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, var gestgjafi fundarins. Auk fulltrúa ESB-ríkja og Íslands tóku ráðherrar og fulltrúar frá Noregi, Bretlandi og Sviss þátt í fundinum.
Ráðherrarnir ræddu meðal annars hvernig ríki geti lært hvert af öðru og nýtt evrópskt samstarf til að bæta námsárangur. Jafnframt var fjallað um hvernig gögn og greiningar á færniþörfum geti stutt stefnumótun og hjálpað menntakerfum að sjá fyrir og bregðast við breytingum í atvinnulífi og samfélagi.
Í ávarpi sínu lagði mennta- og barnamálaráðherra áherslu á að efla lesskilning og grunnfærni barna í kjölfar niðurstaðna PISA. Forgangsverkefnin væru skýrari námskrá, vandaðri námsgögn og aukinn stuðningur við kennara. Grípa þyrfti fyrr inn þegar nemendur ættu í erfiðleikum og veita þeim sem lengra væru komnir krefjandi viðfangsefni.
„Mér þótti áhugavert að sjá á þessum fundi hvernig við erum öll að glíma við sömu áskoranirnar og jafnframt að horfa til svipaðra lausna. Sumir eru hins vegar komnir lengra en aðrir og fróðlegt að bera saman bækur,“ segir Inga.
Ráðherra lagði einnig áherslu á mikilvægi góðrar kennslu, skýrra væntinga og aðstæðna sem styðja við einbeitingu barna. Í því samhengi greindi hún frá reglum um símafrí skóla og fyrirhuguðum aldurstakmörkum á aðgang barna að samfélagsmiðlum.
Þá benti ráðherra á mikilvægi þess að varðveita styrkleika íslensks skólastarfs, meðal annars góða líðan nemenda og sterka tilfinningu þeirra fyrir að tilheyra skólasamfélaginu, samhliða því að bæta námsárangur. Markmiðið væri að hvert barn öðlaðist færni, sjálfstraust og trú á eigin getu til að takast á við framtíðina.