28. október 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónusta með nýrri ráðuneytisstofnun um stafræna þjónustu og upplýsingatækni

{image.Description}
Mynd: Hari

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að setja á fót nýja ráðuneytisstofnun um stafræna þjónustu og upplýsingatækni undir heitinu Stafrænt Ísland. Uppbygging hennar er liður í innleiðingu stefnu um opinbera þjónustu og styður við markmið um betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónustu sem mætir þörfum fólks og atvinnulífs. Ný ráðuneytisstofnun tekur til starfa 1. janúar næstkomandi.

Einföldun skipulags og skýrara hlutverk

Verkefni verkefnastofu um Stafrænt Ísland verða flutt til nýju ráðuneytisstofnunarinnar við upphaf starfseminnar. Þá er stefnt að því að upplýsingatækniverkefni Umbru, rekstrarfélags Stjórnarráðsins, verði flutt þangað á fyrstu mánuðum ársins 2027. Samhliða þessum breytingum verður öðrum verkefnum Umbru fundinn farvegur innan Stjórnarráðsins og starfsemi Umbru í núverandi mynd lögð niður.

Ný og öflug ráðuneytisstofnun fær þannig styrkan grundvöll til að leiða áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu og styðja opinbera aðila við að nýta nýja tækni til að bæta þjónustu og rekstur. Með breytingunni verður byggt á þeirri þekkingu og reynslu sem hefur orðið til við uppbyggingu Ísland.is.

Aukin áhersla á gögn og gervigreind

Aukin áhersla verður lögð á gagnamál hins opinbera og upplýsingatækni, samhliða áframhaldandi uppbyggingu þjónustu á Ísland.is. Markmiðið er að efla getu ríkisins til að nýta gögn og gervigreind með markvissum hætti og skila ávinningi til samfélagsins með betri þjónustu og aukinni skilvirkni.

Þessi áhersla fellur vel að tillögum starfshóps um málefni gervigreindar, sem kynntar voru fyrr í október. Þar er markviss innleiðing gervigreindar hjá hinu opinbera eitt þriggja forgangsverkefna. Starfshópurinn leggur meðal annars áherslu á sameiningu rekstrar upplýsingatækni ríkisins og eflingu gagnamála til að styðja við innleiðingu gervigreindar hjá stofnunum og ráðuneytum.

Starf framkvæmdastjóra Stafræns Íslands verður auglýst í vikunni.