Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur
Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 2. nóvember. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 59 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 4.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 445 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 4.
- Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 59.
- Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 45.
- Sölutilboð yfir jafnvægisverði var 1.
- Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 563.487 lítrar
- Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 2.801.000 lítrar
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 484.752 lítrar að andvirði 145.425.600,- kr.
- Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
- Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 13 talsins og fá 69% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
- Af kauptilboðum er 1 sem fær úthlutun úr forgangspotti nýliða.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.
| Kauptilboð | Sölutilboð | |||
|---|---|---|---|---|
| Magn ltr. | Kr./ltr | Kr./ltr | Magn ltr. | |
| 50.000 | 445 | |||
| 50.000 | 370 | |||
| 100.000 | 350 | |||
| 50.000 | 320 | |||
| 50.000 | 310 | 250 | 139.752 | |
| 100.000 | 305 | 270 | 45.000 | |
| 300.000 | 300 | = | 300 | 300.000 |
| 50.000 | 297 | 350 | 78.735 | |
| 50.000 | 295 | |||
| 100.000 | 294 | |||
| 520.000 | 290 | |||
| 200.000 | 285 | |||
| 50.000 | 284 | |||
| 801.000 | 280 | |||
| 50.000 | 276 | |||
| 50.000 | 275 | |||
| 50.000 | 272 | |||
| 180.000 | 270 | |||
Magn viðskipta | ||||
Tilboð alls | Tilboð alls | |||
Úr reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022:
Jafnvægisverð: Það verð sem myndast þegar framboðið magn er jafnt og eftirspurt magn eða lægsta verð sem jafnvægismagn getur verið selt og keypt á.
Greiðslumarki sem boðið er til sölu á hærra verði en jafnvægisverði skal vísað frá markaði og á sama hátt kauptilboðum sem eru lægri en jafnvægisverð.
Öll viðskipti sem fara fram á viðkomandi markaðsdegi skulu fara fram á því jafnvægisverði sem markaðurinn gefur í það sinn eða hámarksverði.