27. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vinnustofa stjórnvalda um framkvæmd BBNJ-samningsins

Frá vinnustofunni um framkvæmd BBNJ-samningsins en Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er fyrir miðri mynd.
Frá vinnustofunni um framkvæmd BBNJ-samningsins en Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er fyrir miðri mynd.

Utanríkisráðuneytið í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sem og atvinnuvegaráðuneytið stóð í gær fyrir vinnustofu stjórnvalda um BBNJ-samninginn svokallaða (e. Biodiversity beyond national jurisdiction), um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja. Markmið vinnustofunnar var að efla sameiginlegan skilning innan stjórnkerfisins á efni samningsins, þýðingu hans fyrir Ísland og hlutverki stjórnvalda við framkvæmd hans. BBNJ-samningurinn er nýr samningur undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Var hann samþykktur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þann 19. júní 2023 og Ísland fullgilti hann formlega í desember sl.

Á vinnustofunni komu saman fulltrúar ráðuneyta og stofnana sem fara með málefni er tengjast framkvæmd samningsins. Þá tók Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þátt í vinnustofunni. Fjallað var um heildarmyndina, undirbúning fyrstu ráðstefnu aðildarríkja samningsins (COP1), sem halda á í New York í janúar nk. og möguleg áherslumál Íslands á vettvangi samningsins. Einnig var rætt hvernig ákvæði samningsins tengjast íslenskri löggjöf, stjórnsýslu og þátttöku Íslands í öðrum alþjóðastofnunum.

Fjallað var sérstaklega um þrjá meginþætti samningsins: erfðaauðlindir hafsins utan lögsögu ríkja, svæðisbundin stjórnunarúrræði, meðal annars verndarsvæði, og umhverfismat vegna fyrirhugaðrar starfsemi á úthafinu. Rætt var um ábyrgð og upplýsingaskyldu íslenskra stjórnvalda og rannsakenda á sviði hafmála, hvernig tillögur um svæðisbundin stjórnunarúrræði verða undirbúnar og afgreiddar og hvaða starfsemi kann að þurfa að sæta umhverfismati samkvæmt samningnum.

BBNJ-samningurinn, er þriðji framkvæmdasamningurinn sem gerður hefur verið undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Hann tók gildi 17. janúar 2026 og með honum var komið á fót heildstæðu alþjóðlegu kerfi um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni á úthafinu og hafsbotni utan landgrunns. Samningurinn er Íslandi mikilvægur, en hann fjallar meðal annars um verndarráðstafanir á afmörkuðum svæðum, umhverfismat, erfðaauðlindir hafsins, uppbyggingu á færni og miðlun þekkingar og tækni. Brýnt er að Ísland hafi sæti við borðið þar sem málefni hafsins eru til umræðu í þágu heilbrigðis hafs, en á vettvangi samningsins eiga ríki að geta komið sér saman um aðgerðir til að ná fram markmiði um verndun og sjálfbæra nýtingu í hafinu, m.a. með tilgreiningu verndarráðstafana. Einnig er samningnum ætlað að stuðla að samráði og samfellu í aðgerðum milli þeirra stofnana sem þegar hafa skilgreind hlutverk í hafinu, s.s. svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana.

Vinnustofan í gær var liður í undirbúningi íslenskra stjórnvalda fyrir framkvæmd samningsins og þátttöku Íslands í starfi stofnana hans. Áfram verður unnið þvert á ráðuneyti og stofnanir að því að skýra ábyrgð, verkferla og áherslur Íslands áður en fyrsta ráðstefna aðildarríkjanna fer fram í upphafi næsta árs.

Var efnið hjálplegt?