26. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Áfallaþol samfélaga í brennidepli á fundi embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins

Embættismannanefnd Eystrasaltsráðsins.
Embættismannanefnd Eystrasaltsráðsins.

Annar fundur embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins í formennskutíð Íslands var haldinn í höfuðstöðvum ráðsins í Stokkhólmi dagana 19-20. nóvember sl. Fulltrúar frá Norðurlöndunum fimm, Eystrasaltsríkjunum þremur, Póllandi, Þýskalandi og Evrópusambandinu, auk starfsmanna Eystrasaltsráðsins, sóttu fundinn þar sem áfallaþol samfélaga var eitt meginviðfangsefnið.

Fyrri fundardaginn stóð formennska Íslands fyrir sérstöku málþingi um fjölþáttaógnir, svæðisbundinn viðbúnað og áfallaþol samfélaga en síðari fundardaginn átti sér stað hefðbundinn embættismannafundur Eystrasaltsráðsins.

Í formennskutíð sinni leggur Ísland áherslu á áfallaþol samfélaga (resilience) og leitast við að halda áfram og byggja á hagnýtu samstarfi ríkjanna í samræmi við langtímaforgangsmál Eystrasaltsráðsins um öryggi, sjálfbærni og samheldni svæðisins.

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992. Þar eiga sæti Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin þrjú, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið. Skrifstofa ráðsins hefur aðsetur í Stokkhólmi og á vettvangi þess fer fram margþætt samstarf aðildarríkjanna um málefni á borð við barnavernd, almannavarnir og aðgerðir gegn mansali.

Var efnið hjálplegt?