21. nóvember 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun – næstu skref og samráð

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið vekja athygli á fyrirhuguðu samráði um sameiningaráform Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Áform um lagasetningu verða kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í desember en stefnt er að því að frumvarp um málið verði lagt fram á vorþingi 2027.

Fram undan eru spennandi skref í uppbyggingu kraftmikillar starfsemi. Markmið sameiningarinnar er að skapa öfluga og heildstæða þekkingarstofnun sem tengir saman rannsóknir, vöktun, varðveislu vísinda- og náttúrugripa, fræðslu og miðlun.

Fagleg og fjárhagsleg samlegð

Ákvörðun um sameiningu byggist meðal annars á niðurstöðum frumathugunar á faglegum, samfélagslegum og rekstrarlegum ávinningi sem sameiningin getur haft í för með sér. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað bent á skörun í verkefnum stofnananna og mögulegan ávinning af sameiningu, eins og sjá má í skýrslunum hér að neðan.

Stofnanirnar tvær eru ólíkar að stærð og sinna fjölbreyttum verkefnum. Í árslok 2025 voru tæplega 70 stöðugildi hjá Náttúrufræðistofnun en tæplega átta hjá Náttúruminjasafni Íslands. Framtíðarsýnin byggist á styrkleikum beggja stofnana og sögu þeirra. Sameinuð stofnun getur veitt samfélaginu heildstæðari þjónustu, styrkt innviði þekkingarsköpunar um íslenska náttúru og gert niðurstöður rannsókna og vöktunar aðgengilegri almenningi og skólasamfélaginu. Hún getur jafnframt stutt betur við stefnumótun og ákvarðanatöku í málum sem varða náttúruvernd, líffræðilega fjölbreytni og loftslag. Betri nýting mannauðs, húsnæðis, innviða og stoðþjónustu getur auk þess skilað faglegri samlegð og aukið fjárhagslega hagkvæmni til lengri tíma.

Framtíðarheimili og endurskipulagning

Fjárhagsstaða Náttúruminjasafns Íslands er ein helsta áskorunin í verkefninu. Uppsafnaður rekstrarhalli nam 419,8 milljónum króna í árslok 2025. Af þeirri fjárhæð má rekja 288 milljónir króna til kostnaðar við nýja grunnsýningu sem byggist að stórum hluta á margmiðlun. Að öðru leyti skýrist hallinn af uppsöfnuðum rekstrarkostnaði fyrri ára.

Nýtt hús við Safnatröð 5 á Seltjarnarnesi er fyrirhugað framtíðarheimili sýninga- og fræðslustarfs Náttúruminjasafns Ísland en stefnt er að því að það verði opnað almenningi á næsta ári. Áhersla verður lögð á safnakennslu fyrir skólahópa og miðlun þekkingar um náttúru Íslands með nútímalegri og aðgengilegri grunnsýningu í faglegu safnaumhverfi. Opnun hússins verður mikilvægur áfangi í starfsemi Náttúruminjasafnsins. Yfirstandandi er vinna faghóps við að rýna áætlanir um grunnsýninguna, þar með talið kostnað og mögulega áfangaskiptingu. Samkvæmt nýlegri áætlun er gert ráð fyrir að kostnaður við framleiðslu og uppsetningu hennar nemi 270 milljónum króna. Tryggja þarf raunhæfa áætlunargerð og fulla fjármögnun áður en hafist verður handa við framleiðslu sýningar.

Í gildandi fjármálaáætlun er ekki gert ráð fyrir sérstökum viðbótarfjármunum til að mæta uppsöfnuðum halla eða standa undir sýningargerð og framkvæmdum við Safnatröð. Fjármögnun verkefnanna kallar því á forgangsröðun innan fjárheimilda menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Að auki er ljóst að Náttúruminjasafnið getur ekki staðið undir rekstri safna- og sýningarstarfsemi við Safnatröð með óbreyttum fjárframlögum og uppsöfnuðum halla. Fjárhagsleg endurskipulagning safnsins er því óhjákvæmileg og er unnið að henni samhliða áformum um sameiningu. Með því að sameina stofnanirnar í eina öflugri þekkingarstofnun og stærri rekstrareiningu má ná fram hagræðingu og skjóta styrkari stoðum undir starfsemi og rekstur Náttúruminjasafnsins til framtíðar.

Næstu skref og samráð

Verkefnisstjórn skipuð fulltrúum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis vinnur nú að undirbúningi sameiningarinnar í samstarfi við forstöðumenn beggja stofnana.

 

Líkt og sjá má á meðfylgjandi skýringarmynd lýtur vinna verkefnisstjórnar að þremur þáttum:  

  • Sýning og starfsemi að Safnatröð 5 
    Skipaður hefur verið faghópur til að rýna áætlanir um grunnsýningu, þ.m.t. kostnað og mögulega áfangaskiptingu. Samhliða vinnur ráðuneytið að fjármögnun verkefnisins.   
  • Fjárhagsleg endurskipulagning  
    Leysa þarf uppsafnaðan rekstrarvanda Náttúruminjasafnsins og tryggja rekstrargrundvöll safna- og sýningarstarfsemi að Safnatröð til framtíðar.  
  • Sameining - lagabreyting og samráð  
    Unnið er að undirbúningi nauðsynlegra lagabreytinga til að sameina stofnanirnar. Áform um sameininguna verða kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun desember en lagt er upp með að frumvarp verði lagt fram á vorþingi 2027 og að gildistaka nýrra laga verði 1. janúar 2028. Markmið lagasetningar er að skapa öfluga og heildstæða þekkingarstofnun um rannsóknir og miðlun á íslenskri náttúru þar sem hlutverk Náttúruminjasafnsins sem höfuðsafns á sviði náttúrufræða, samkvæmt safnalögum, er tryggt.

 

Núverandi starf og sýning

Markmið safnfræðslu Náttúruminjasafns Íslands er að styðja við náttúrufræðikennslu á öllum skólastigum á skapandi og hvetjandi hátt og kynna fyrir nemendum spennandi heim náttúruvísinda. Jafnframt er lögð áhersla á að vekja nemendur til umhugsunar um umhverfi sitt og órjúfanleg tengsl manns og náttúru.

Tekið er á móti skólahópum á sýningu safnsins, Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar. Sýningin er nútímaleg og fjölbreytt og býður upp á margvísleg viðfangsefni í náttúrufræðum. Fræðsla er ókeypis fyrir skólahópa, aðlöguð að hverju skólastigi og tekur mið af aðalnámskrá. Safnið stendur einnig fyrir sýningu um rostunga hjá Selasetri Íslands á Hvammstanga. Auk sýninga og fræðsluviðburða sinnir safnið rannsóknastarfi, skráningu og varðveislu, samstarfi af ýmsum toga og útgáfu.

Nánar má lesa um niðurstöður og framtíðarsýn frumathugunarinnar hér:

https://www.stjornarradid.is/library/?itemid=fda9668e-64ac-11f1-b8a2-005056bcde1f.

Skýrslur Ríkisendurskoðunar má nálgast hér:

https://www.rikisendurskodun.is/reskjol/files/Skyrslur/2012-Natturuminjasafn.pdf , https://www.rikisend.is/reskjol/files/Skyrslur/2015-natturuminjasafn.pdf, https://www.rikisend.is/reskjol/files/Skyrslur/2018-Natturuminjasafn-Islands.pdf

Svar menningar-, nýsköpunar- og viðskiptaráðherra við skriflegri fyrirspurn Ingibjargar Isaksen þingmanns: https://www.althingi.is/altext/158/s/0437.html

Var efnið hjálplegt?