10. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Námskeið um öryggis- og varnarmál haldið í sjöunda sinn

{image.Description}
Þátttakendur á námskeiði um öryggis- og varnarmál ásamt fulltrúum utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Hátt í 150 hafa nú lokið námskeiði um öryggis- og varnarmál sem varnarmálaskrifstofa og skrifstofa alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu og skrifstofa löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu standa fyrir tvisvar á ári. Sjöunda námskeiðið í röðinni fór fram í síðustu viku, 2.- 6. nóvember.

Markmiðið er að efla þekkingu á öryggis- og varnarmálum meðal starfsfólks ráðuneyta, stofnana, fjölmiðla, háskóla, fyrirtækja og samtaka sem tengjast málaflokknum með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni sat 21 námskeiðið. Meðal nemenda var starfsfólk frá lögreglu, heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Ríkisútvarpinu og Rauða krossinum. Utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra heilsuðu upp á þátttakendur fyrsta dag námskeiðsins og sátu fyrir svörum.

„Við lifum á víðsjárverðum tímum og hið síbreytilega alþjóðlega öryggisumhverfi kallar á að við eflum þekkingu og sköpum vettvang fyrir fræðslu og samtal um öryggis- og varnarmál. Námskeiðið hefur sannað gildi sitt með því að gefa þátttakendum tækifæri til að dýpka þekkingu sína, miðla eigin reynslu og taka þátt í upplýstri umræðu um málaflokkinn,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Með námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að kynnast öryggis- og varnarmálum frá ólíkum hliðum. Þeir öðlast þannig betri skilning á því hvernig málaflokkurinn er skipulagður og honum sinnt hér á landi. Auk fræðslu um stefnumótun, skipulag og framkvæmd málaflokksins kynnast þátttakendur starfseminni í heimsóknum á öryggissvæðið í Keflavík, til Landhelgisgæslu Íslands og embættis ríkislögreglustjóra.

„Við búum að öflugu fólki og mikilli þekkingu innan þeirra stofnana sem sinna öryggis- og varnarmálum. Það er mikilvægt að sú þekking nái víðar og að fleiri hafi innsýn í þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og hvernig við búum okkur undir þær. Námskeiðið er mikilvægur liður í því að auka þekkingu og skilning á þessum málum," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Var efnið hjálplegt?