6. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Stefna í áfengis- og vímuvarnamálum til 2035

{image.Description}
Starfshópurinn sem vann stefnuna að loknum skilafundi með heilbrigðisráðherra

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum til ársins 2035. Markmiðið er að draga úr skaða af völdum áfengis og annarra vímuefna og tryggja fólki jafnt aðgengi að fjölbreyttri þjónustu sem mætir þörfum þess. Lýðheilsa, gagnreynd þekking og virðing fyrir mannréttindum eru leiðarljós stefnunnar.

Stefnan er unnin af starfshópi heilbrigðisráðherra sem falið var að móta heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum. Eldri stefna á þessu sviði var frá árinu 2013 og því tímabært að endurskoða hana í ljósi margvíslegra breytinga á undanförnum árum, jafnt samfélagslegra, breytinga á viðhorfum til áfengis- og vímuefnavanda og ekki síst þekkingar á sviði forvarna og meðferðar.

Við vinnu sína við mótun stefnunnar byggði starfshópurinn á víðtæku stöðumati á stöðu málaflokksins hér á landi, samráði við helstu hagsmunaaðila og alþjóðlegum viðmiðum og leiðbeiningum, meðal annars frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

Tengsl við skaðaminnkun og stefnu í geðheilbrigðismálum

Megináherslur stefnunnar felast í því að efla forvarnir og snemmtæk inngrip, bæta aðgengi að meðferð, endurhæfingu og skaðaminnkandi þjónustu og styrkja stuðning við aðstandendur og börn fólks með vímuefnavanda. Stefnan tengist fyrirliggjandi stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í skaðaminnkun og sömuleiðis stefnu stjórnvalda í geðheilbrigðismálum, sbr. þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030, enda er algengt að geð- og áfengis- eða annar vímuefnavandi fari saman.

Stefnumótunin byggðist á samráði við hagaðila, innlendri og alþjóðlegri þekkingu og stöðumati erlends sérfræðings á íslenska meðferðarkerfinu. Drög að stefnunni voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda og bárust 20 umsagnir frá almenningi, fagfélögum, hagsmunasamtökum og öðrum hagaðilum.

Ný stefna tekur mið af alþjóðlegri þróun og íslenskum aðstæðum og þörfum. Hún byggist á heildrænni, gagnreyndri og þverfaglegri nálgun sem nær frá forvörnum og snemmtækum inngripum til meðferðar, endurhæfingar og skaðaminnkunar. Með þessari nálgun er markmiðið að stuðla að heilbrigðara samfélagi þar sem dregið er úr skaðlegum áhrifum áfengis- og vímuefnanotkunar, jafnt aðgengi er að þjónustu og virðing fyrir mannréttindum, mannlegri reisn og samfélagslegri þátttöku er höfð að leiðarljósi.

Framkvæmd stefnunnar verður útfærð í fimm ára aðgerðaáætlun. Meðal verkefna er að skýra ábyrgð þjónustuveitenda, efla menntun og nýliðun starfsfólks, samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu og bæta gagnasöfnun og árangursmat. Einnig er stefnt að samhæfðu mati á þjónustuþörf og miðlægum biðlista.  Stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið leiðir þá vinnu í samstarfi við þjónustuveitendur, notendur og aðra hagaðila. Þar verður verkefnum forgangsraðað og ábyrgð, tímasetningar, mælikvarðar og kostnaður skilgreind.

 

Var efnið hjálplegt?