6. nóvember 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Nýr yfirmaður herstjórnar NATO í Norfolk í heimsókn á Íslandi

{image.Description}
Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Nick Perry hershöfðingi, yfirmaður sameiginlegrar herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk.

Nick Perry hershöfðingi, er nýr yfirmaður sameiginlegrar herstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk (Joint Force Command Norfolk, JFC Norfolk). Perry er fyrsti breski herforinginn til að gegna stöðu yfirmanns JFC Norfolk og kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Íslands 6. nóvember. Hann tók við stjórninni af bandaríska flotaforingjanum Douglas G. Perry þann 24. september 2026.

Í heimsókninni voru Perry kynntar aðstæður á Íslandi og framlög Íslands til varnarmála, þar á meðal aðstöðu og innviði á öryggissvæðinu í Keflavík sem styðja við starfsemi, eftirlit og viðbúnað Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Slík aðstaða er mikilvægur þáttur í framlagi Íslands til sameiginlegra varna.

„Ísland gegnir lykilhlutverki í vörnum og eftirliti á Norður-Atlantshafi og því er mikilvægt að efla áfram samstarf við aðgerðaherstjórn Atlantshafsbandalagsins í Norfolk, þar sem við erum með þrjá útsenda sérfræðinga. Heimsókn Perry er gott tækifæri til að ræða sameiginlega hagsmuni okkar og tryggja að þekking á aðstæðum á Íslandi og mikilvægi landsins sé hluti af sameiginlegri varnaráætlanagerð bandalagsins,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.

„Það er mikill heiður að heimsækja Ísland í fyrsta sinn sem yfirmaður herstjórnar NATO í Norfolk. Vegna landfræðilegrar legu sinnar gegnir Ísland mikilvægu hlutverki í vörnum Norður-Atlantshafsins og sameiginlegum fælingarmætti NATO. Framlag Íslands til viðbúnaðar, aðgerða og samstarfs innan bandalagsins hefur aldrei verið mikilvægara. Ég er þakklátur fyrir góðar móttökur og hlakka til að efla enn frekar samstarf okkar við Ísland um sameiginlegt öryggi og varnir mikilvægra svæða á Norður-Atlantshafi.“ segir Nick Perry hershöfðingi, yfirmaður JFC Norfolk.

JFC Norfolk er fjölþjóðleg aðgerðastjórn Atlantshafsbandalagsins sem heyrir undir æðsta herstjórnanda bandalagsins í Evrópu (SACEUR). Aðgerðaherstjórnin ber ábyrgð á vörnum og varnarviðbúnaði á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, þar á meðal Íslandi og öllum Norðurlöndunum. Hún gegnir jafnframt lykilhlutverki í að tryggja öryggi mikilvægra samgönguleiða milli Norður-Ameríku og Evrópu.

Nick Perry hershöfðingi hefur yfir 35 ára reynslu af herþjónustu í breska hernum. Áður en hann tók við stjórn JFC Norfolk gegndi hann meðal annars embætti yfirmanns sameiginlegra hernaðaraðgerða breska hersins. Hann hefur víðtæka reynslu af alþjóðlegu varnarsamstarfi og aðgerðum, meðal annars á Balkanskaga, í Afganistan og Írak.

Var efnið hjálplegt?