6. nóvember 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Fagþekking ljósmæðra betur nýtt og eftirfylgni rannsókna gerð öruggari

{image.Description}
Meðgönguvernd

Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sem sinna meðgönguvernd geta frá og með deginum í dag pantað rannsóknir í eigin nafni og með eigin starfsleyfisnúmeri. Með breytingunni nýtist fagþekking þeirra betur, boðleiðir styttast og eftirfylgni rannsóknarniðurstaðna verður öruggari. Markmiðið er að bæta þjónustu við barnshafandi konur og auka öryggi þeirra.

Ljósmæður hafa um árabil pantað rannsóknir og fylgt þeim eftir í meðgönguvernd. Vegna takmarkana í rafrænum kerfum hafa rannsóknarbeiðnir hins vegar verið skráðar í nafni lækna og niðurstöður því borist þeim í stað þess að berast beint til þeirra ljósmæðra sem óskuðu eftir rannsóknunum og sáu um eftirfylgnina.

Skýrari ábyrgð og  öruggari eftirfylgni

Með breyttu fyrirkomulagi verður sá heilbrigðisstarfsmaður sem pantar rannsókn og ber ábyrgð á eftirfylgni hennar rétt skráður á beiðnina. Þannig er betur tryggt að niðurstöður berist beint til þess sem á að bregðast við þeim. Breytingin einfaldar jafnframt verklag og dregur úr óþarfa milliliðum í þjónustunni..

Breytingin byggir á tillögum starfshóps heilbrigðisráðuneytisins sem birtust í skýrslunni Mönnun ljósmæðra nú og til framtíðar með áherslu á sem besta nýtingu fagþekkingar ljósmæðra innan heilbrigðisþjónustunnar í nóvember 2024. Þar var meðal annars lögð áhersla á að skýra ábyrgð á rannsóknarbeiðnum og eftirfylgni niðurstaðna og nýta betur fagþekkingu ljósmæðra í meðgönguvernd.

Breytingin tekur til þeirra rannsókna sem ljósmæður og hjúkrunarfræðingar panta og fylgja eftir sem hluta af meðgönguvernd samkvæmt gildandi faglegum leiðbeiningum. Áfram verður haft samráð við lækni um túlkun niðurstaðna og meðferð þegar þörf krefur, í samræmi við faglegar leiðbeiningar og klínískt mat.

Breytingin felur hvorki í sér fjölgun rannsókna í hefðbundinni meðgönguvernd né breytta greiðsluábyrgð. Heilbrigðisstofnanir bera áfram kostnað vegna rannsókna sem pantaðar eru á þeirra vegum. Ráðuneytið hefur óskað eftir að stofnanir kynni breytinguna fyrir viðeigandi starfsfólki og aðlagi verklag sitt að henni.

Var efnið hjálplegt?