17. febrúar 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fundaði með japönskum starfsbróður sínum

Þorgerður Katrín með Toshimitsu Motegi, utanríkisráðherra Japans.
Þorgerður Katrín með Toshimitsu Motegi, utanríkisráðherra Japans.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með utanríkisráðherra Japans, Toshimitsu Motegi, í Tókýó í dag. Þar ræddu ráðherrarnir tvíhliða samskipti ríkjanna, viðskiptamál, öryggismál í Evrópu og málefni Úkraínu, norðurslóðamál og stöðuna á Indó-Kyrrahafssvæðinu.

Þorgerður Katrín er stödd í opinberri vinnuheimsókn í Japan. Hún fundaði einnig í dag með Takuo Komori, vararáðherra í utanríkisviðskipta-, efnahags og iðnaðarráðuneyti Japans (METI). Þar voru viðskipti ríkjanna og efnahagslegt öryggi í víðu samhengi til umræðu. 


„Japan er eitt helsta samstarfsríki okkar í Asíu, ekki síst á sviði viðskipta, en í ár verða bæði liðin 70 ár frá því að ríkin tóku upp formlegt stjórnmálasamband, og aldarfjórðungur frá gagnkvæmri stofnun sendiráða í Reykjavík og Tókýó,“ segir Þorgerður Katrín. „Japan gegnir lykilhlutverki í virðiskeðju alþjóðlegra framleiðslufyrirtækjaog býr yfir gríðarlegri tækniþekkingu og sterkum innviðum. Við eigum í góðu sambandi við Japan og það er mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni þar sem ríkið er eitt af fimm stærstu hagkerfum heims.“


Dagskrá utanríkisráðherra heldur áfram í vikunni, en hún mun m.a. hitta stjórn íslenska viðskiptaráðsins í Japan, fulltrúa íslenskra fyrirtækja í Tókýó og forystukonur á sviði jafnréttismála.

Var efnið hjálplegt?