12. febrúar 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Sigurlín hlaut viðurkenningu Málnefndar um íslenskt táknmál

Sigrún Brynja Einarsdóttir, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir og Valgerður Stefánsdóttir.
Sigrún Brynja Einarsdóttir, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir og Valgerður Stefánsdóttir.

Sigurlín Margrét Sigurðardóttir er handhafi viðurkenningar Málnefndar um íslenskt táknmál í ár, en viðurkenningin var veitt í gær á degi íslenska táknmálsins. Sigurlín hlýtur viðurkenninguna fyrir framlag sitt til eflingar íslensks táknmáls, t.a.m. með því gera það sýnilegt á fjölbreyttum vettvangi í samfélaginu. Þá hlaut Sigríður Borg Harðardóttir heiðursviðurkenningu Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra fyrir framlag hennar til varðveislu íslensks táknmáls. 

Nýjasta verkefni hennar er Táknmálsvitinn, sem Sigurlín opnaði á samfélagsmiðlum. Þar fræðir hún um íslenskt táknmál bæði á íslensku og íslensku táknmáli með það að markmiði að auka skilning og efla vitund almennings. Hún minnir þar á að táknmál séu mannréttindi. Til viðbótar rekur Sigurlín ferðaþjónustu á táknmáli og tekur á móti erlendum og innlendum ferðamönnum og sýnir þeim landið.

Þá hefur hún mótað og þróað fjölmörg verkefni og fengið til samstarfs m.a. Endurmenntun Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg. Verkefnin hafa falist í leiðsögnum á íslensku táknmáli um ýmsar menningarstofnanir, til dæmis Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Árbæjarsafn, Hellisheiðarvirkjun, listasýningar og handritin í Eddu.

Íslenskt táknmál jafnrétthátt íslensku

Degi íslenska táknmálsins var fagnað í fjórtánda skipti í gær á afmælisdegi Félags heyrnarlausra. Íslenska táknmálið var viðurkennt með lögum á Alþingi árið 2011 en þar er það skilgreint jafnrétthátt íslensku og sem fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á táknmál til tjáningar og samskipta. Áætlað er að um 300 Íslendingar tali táknmál.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipar Málnefnd um íslenskt táknmál til fjögurra ára í senn samkvæmt lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls frá 2011. Hlutverk málnefndar er að stuðla að eflingu íslensks táknmáls, notkun þess í íslensku þjóðlífi, styrkja stöðu þess og virðingu og beita sér fyrir aðgerðum til varðveislu þess. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) er undirstofnun menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Auk þess að veita Sigríði Borg heiðursviðurkenningu á degi íslensks táknmáls í gær opnaði SHH nýja krakkasíðu, sem ætlað er að auka aðgengi barna að íslensku táknmáli.

Á síðasta ári lögfesti Ísland samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og skuldbatt sig þar með til að tryggja að menntun fólks, sérstaklega barna með heyrnarskerðingu, fari fram á viðeigandi tungumáli og tjáningarmáta sem hentar viðkomandi einstaklingi og í umhverfi sem hámarkar náms- og félagsþroska. Í samningnum er einnig kveðið á um að viðurkenna og auðvelda notkun táknmáls, punktaleturs, aukinna og óhefðbundinna samskipta og allra annarra aðgengilegra samskiptaleiða, -máta og -forma sem fatlað fólk kýs að nota í opinberum samskiptum.

Var efnið hjálplegt?