5. febrúar 2026 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hverfjall

{image.Description}
Hverfjall.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Hverfjall í landi Voga í Mývatnssveit.

Hverfjall er gjóskugígur sem hlóðst upp á skömmum tíma í mjög kröftugu þeytigosi fyrir um 2.500 árum. Gígurinn er með þeim stærstu sem þekkjast á jörðinni og hefur hátt verndargildi. Frá Hverfjalli er sérlega gott útsýni yfir Mývatnssveit og er ganga á fjallið og umhverfis gíginn stutt og gefandi. Hverfjall var friðlýst árið 2011 og var friðlýsingin endurskoðuð í nóvember 2024 og svæðið þá stækkað í samráði við landeigendur.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Hverfjall er þekkt kennileiti í Mývatnssveit. Formfagur gígur sem býður upp á magnaða náttúruupplifun, enda einn vinsælasti ferðamannastaðurinn við Mývatn. Það er því ánægjulegt að geta staðfest stjórnunar- og verndaráætlunina sem við bindum vonir við að muni stuðla að góðri umgengni og náttúruvernd á staðnum.“

Í stjórnunar- og verndaráætluninni er lögð fram stefnumótum til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til eins árs. Stjórnunar- og verndaráætlunin var unnin í samstarfi Náttúruverndarstofnunar, landeigenda Voga og Þingeyjarsveitar.

Náttúruvætti er einn flokkur friðlýstra svæða og er markmiðið með friðlýsingu slíkra svæða að vernda einstakar náttúrumyndanir sökum fræðilegs gildis, fegurðar, eða sérkenna.

Var efnið hjálplegt?