2. febrúar 2024 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þróun rekstrar grunnskóla frá 1996 til 2022

Frá málþinginu Reynslunni ríkari
Frá málþinginu Reynslunni ríkari

Þróun rekstrar grunnskóla frá því að þeir færðust frá ríki til sveitarfélaga frá 1996 til fram til ársins 2022 er gerð skil í nýrri skýrslu. Þar eru dregnar saman niðurstöður greiningarvinnu sem kynnt var á Reynslunni ríkari – málþingi um skólamál sem haldið var í lok október sl.

Í skýrslunni er farið yfir reynsluna og lærdóm af flutningnum með því að rýna í gögn um ýmsa þætti í skólastarfi grunnskóla á tímabilinu til að greina þróunina. Lagðar eru fram tillögur sem nú eru til skoðunar hjá menntayfirvöldum. 

Greiningarvinnan var unnin í tengslum við samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga í tilefni þess að aldarfjórðungur var liðinn frá flutningi á rekstri grunnskóla til sveitarfélaga árið 1996. Efnið verður nýtt m.a. til hagnýtingar við innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, menntastefnu til ársins 2030 og aðgerða í byggðaáætlun er lúta að menntun og fræðslu. Rýnt var í þróun skólaþjónustu sl. 25 ár til að greina hlutverk og skipulag skólaþjónustu í innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu 2030.

Í greiningarvinnunni var einnig horft til útgáfu námsgagna og fyrirkomulags starfsþróunar kennara og skólastjórnenda grunnskóla frá 1996 til 2021. Þær niðurstöður ásamt ýmsum tillögum til úrbóta eru dregnar saman í skýrslunni: 25 ár frá yfirfærslu grunnskólans til sveitarfélaga.

Var efnið hjálplegt?