Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
8. nóvember 2019 /
Heilbrigðisráðuneytið

Framtíðarfyrirkomulag skimana fyrir krabbameinum

Heilbrigðisráðherra og landlæknir
Heilbrigðisráðuneyti
Heilbrigðisráðherra og landlæknir

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela heilsugæslunni að annast skimun fyrir leghálskrabbameinum og að skimun fyrir brjóstakrabbameini verði á hendi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri þegar samningur Sjúkratrygginga Íslands við Krabbameinsfélag Íslands rennur út í lok árs 2020.

Embætti landlæknis og skimunarráð sem er ráðgefandi fyrir embættið á þessu sviði, kynntu heilbrigðisráðherra í mars síðastliðnum tillögur að breyttu skipulagi á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Eins og þar kom fram er áhersla lögð á að skimanir verði hluti af almennri og opinberri heilbrigðisþjónustu.

Fjallað er um skimun fyrir leghálskrabbameini á hendi heilsugæslunnar í umfjöllun á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Þar kemur fram að regluleg skimun fyrir leghálskrabbameini geti komið í veg rúmlega 90% tilfella sjúkdómsins. Ein aðalforsenda þess að koma megi í veg fyrir leghálskrabbamein sé reglubundin þátttaka í skimun fyrir sjúkdómnum ásamt þátttöku stúlkna í HPV-bólusetningum sem öllum stúlkum í 7. bekk stendur til boða. Talið er að bólusetningin veiti 70% vörn gegn leghálskrabbameini. Eins og fram kemur í umfjöllun HH hefur nýgengi leghálskrabbameina aukist undanfarin ár og því brýnt að auka til muna þátttöku kvenna í skimun. Hún er nú um 67% en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin  hefur gefi út að æskileg þátttaka sé um 85%.

Heilbrigðisráðherra skipaði í september síðastliðnum verkefnastjórn til að gera tillögur um útfærslu á fyrirliggjandi tillögum og ákvörðunum um breytt skipulag á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum. Áætlað er að verkefnastjórnin skili ráðherra niðurstöðum sínum í  desember næstkomandi.

 

 

 

 

 

Var efnið hjálplegt?