Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. apríl 2019 /
Forsætisráðuneytið

Fullt hús Grænna skrefa hjá forsætisráðuneytinu

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar

Forsætisráðuneytið fékk afhenta viðurkenningu fyrir innleiðingu á fimmta og síðasta skrefinu í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri. Nú þegar innleiðingunni er lokið mun vinnan halda áfram og árangrinum þannig viðhaldið.

Starfsmenn hafa þegar náð góðum árangri í umhverfismálum og umhverfismeðvitund. Hér má nefna nokkur af þeim fjölmörgu atriðum sem hafa breyst til hins betra:

  • Enginn einnota borðbúnaður
  • Úrgangsmagn hefur minnkað um 17% á milli áranna 2017 og 2018
  • Minni notkun á heitu vatni
  • Áhersla lögð á fjarfundi í stað ferðalaga

Var efnið hjálplegt?