Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26. febrúar 2019 /
Forsætisráðuneytið

Greinargerð bankaráðs Seðlabanka Íslands um mál Samherja hf.

Seðlabanki Íslands
Mynd af vef Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands

Þann 12. nóvember sl. óskaði forsætisráðherra eftir greinargerð bankaráðs Seðlabanka Íslands um mál Samherja hf. í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 463/2017. Í dómnum var staðfest niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi ákvörðun Seðlabanka Íslands frá 1. september 2016 um að Samherji hf. skuli greiða 15 millj. kr. í stjórnvaldssekt til ríkissjóðs vegna brota gegn 12. gr. reglna nr. 880/2009 um gjaldeyrismál og 12. gr. reglna nr. 370/2010 um gjaldeyrismál, sbr. bráðabirgðaákvæði I laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og 1. mgr. 13. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum.

Umbeðin greinargerð hefur nú borist forsætisráðuneytinu og er hún hér með gerð opinber. Vakin er athygli á því auðkenni lögaðila og einstaklinga annarra en Samherja hf. hafa verið afmáð úr greinargerðinni.

Forsætisráðuneytið mun á næstu vikum leggja mat á efnisatriði greinargerðarinnar og hvort tilefni sé til þess m.a. að óska eftir frekari gögnum og skýringum frá bankanum. Forsætisráðuneytið mun jafnframt hafa greinargerðina til hliðsjónar í yfirstandandi vinnu við endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands vegna fyrirhugaðrar sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

 

Greinagerð bankaráðs Seðlabanka Íslands


Var efnið hjálplegt?