Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
16. janúar 2018 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Utanríkisráðuneytið

Undirritun tvísköttunarsamnings við Japan

Guðlaugur Þór Þórðarson og Yasuhiko Kitagawa eftir undirritun samningsins.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Yasuhiko Kitagawa eftir undirritun samningsins.

Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Japan var undirritaður í Reykjavík þann 15. janúar 2018. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra fyrir hönd Íslands og Yasuhiko Kitagawa sendiherra Japans á Íslandi fyrir hönd Japans.

Helstu efnisatriði samningsins eru þau að enginn afdráttarskattur er af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 25% eignarhlutdeild í félaginu sem greiðir arðinn, að móttakandi arðsins sé raunverulegur eigandi og að hann hafi átt hlutabréf í félaginu í a.m.k. sex mánuði áður en arður er greiddur út eða sé í eigu lífeyrissjóða að nánar tilgreindum skilyrðum. Samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 10% í félaginu sem greiðir arðinn, að móttakandi arðsins sé raunverulegur eigandi og hafi átt hlutabréf í félaginu í a.m.k. sex mánuði áður en arður er greiddur út. Að öðrum kosti er afdráttarskattur af arði 15%.

Enginn afdráttarskattur er af vöxtum eða þóknunum. Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun og jafnframt er að finna ákvæði um aðstoð við innheimtu skatta. Í samningnum er að finna sérstakt ákvæði sem á að koma í veg fyrir misneytingu ívilnana sem samningurinn veitir.

Á næstu mánuðum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins. Vonast er til að samningurinn komi til framkvæmda 1. janúar 2019.

Var efnið hjálplegt?